Vorútgáfan - Á ferð og flugi

By Myndarsogur , 26 December 2025
Hvert er förinni heitið

innsendingar

vor útgáfa

Jarðarfararblaðið



Vor útgáfa

Jarðarfararblaðið

Þar sem við ferðumst yfir jörðina í gleði og glaum.  Skemmtum okkur með þeim sem við elskum og sjáum alla litina og ljósið.  
Þetta verður heiftarlegt fjör.  Kannski verða hjólabretti á sveimi, kannski fer einhver að klifra í fjöllum,  kannski er eitthvað að gerast á sjávarbotni, kannski er einhver hópur í fótbolta

Leikir, litir, gleði og gaman.

Þetta verður seinasta útgáfan okkar
(á árinu).

Það verður ekki hryllingsútgáfa næsta haust 
og það verður ekkijólaútgáfa.  

Við endurseljum bara jólaútgáfuna sem kom út núna, 
eða gerum dagatal eða eitthvað sem að fólk vill kaupa.  
Sjáum til hvað við gerum. 

Við ætlum hinsvegar að gera þessa vorútgáfu.

Þetta er bara eitthvað sprell. Alvarlegt samt.

Sumarsprell til að taka með í bústaðinn eða ferðalagið.
Allskonar vitleysa.
Þetta er fyrir alla.
Um að gera að koma með vafasamann húmor,
 eða þroskuð æfintýri fullorðins fólks,
sem er bara að reyna að vera til,
í þessu léttruglaða samfélagi manna.

Það má segja sannleikann.
Það má bulla bara.

Við erum bara hérna til þess að leyfa fólki 
að sjá hvað býr í íslensku sumri, í hjörtum okkar allra 
og afhverju myndasögur eiga skilið að lifa 
með okkur í okkar daglega lífi


,, 2026 er ár myndasögunnar "

set það í undirskriftina mína
 

Allar innsendingar berist á Utgafa@myndarsogur.is 
P.s.
ef þið viljið koma og spjalla um myndasögur, stöðu myndsögunnar, skemmtilegar sögur til að lesa eða jafnvel koma með hugmyndir af einhverju sem væri sniðugt að gera. Kíkið þá endilega við á  Myndasogur.app 



 

--
 

Logo
 

Myndarsögur.is

Tryggvagata 17, 101 Reykjavík 
- 2026 er ár myndasögunnar -
 

Comments